Skýjaáhugamannasíða

Ég hef lengi gengið með þann draum í maganum að stofna veðurblogg og nú loksins (loksins!) með nýfundnu frelsi hef ég tíma til að koma því í verk. Þetta er að mestu gert fyrir mig sjálfa til að halda utan um skemmtilegar greinar, myndir og fróðleik en ef einhver annar hefur áhuga á þessu er það frábært.

Allt á þessari síðu er á minni ábyrgð og kemur ekki neinum stofnunum við sem ég vinn hjá, hvorki Veðurstofunni, Flugskóla Íslands né RÚV.

Í fyrstu færslunni minni finnst mér tilvalið að benda fólki á uppáhalds skýjasíðuna mína, Cloud Appreciation Society, en þar eru stórkostlegar skýjamyndir. Þeir hafa einnig þróað app (viðbót á íslensku?), CloudSpotter app, þar sem hægt er að taka þátt í leik um að sjá sem flestar skýjategundir þar sem myndir eru teknar af skýjum og tegundin greind. Viðbótin er í samvinnu við NASA sem notar upplýsingarnar til að stilla CERES mælitæki sín sem eru á þremur gervitunglum og mæla skýjamagn á jörðu. Þessi viðbót inniheldur líka góðar lýsingar á helstu skýjategundunum og nokkrum veðurfyrirbærum.

cloudapplogo

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Bestu kveðjur!

-Birta 


Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: ÞJÓÐARSÁLIN

Til hamingju með þetta!

Góð vinkona mín er veðurfræðingur og stundum, þegar hún er þreytt á aðfinnslum þá fær hún vísur.

Nú er veðrið feiknaflott

finn ég ekki nokkurn næðing.

Eins og gaman væri og gott

að geta skammað veðurfræðing

ÞJÓÐARSÁLIN, 24.1.2014 kl. 18:17

2 Smámynd: Birta Líf Kristinsdóttir

Haha takk fyrir þetta!

Kveðja Birta

Birta Líf Kristinsdóttir, 24.1.2014 kl. 18:47

3 identicon

Frábært

Thura Gardarsdottir (IP-tala skráð) 27.1.2014 kl. 20:06

4 identicon

Til lukku með þetta mín kæra. Skýjahorn? :)

Olla (IP-tala skráð) 27.1.2014 kl. 23:17

5 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Til hamingju með þessa nýju veðurbloggsíðu!

Ágúst H Bjarnason, 28.1.2014 kl. 19:42

6 Smámynd: Birta Líf Kristinsdóttir

Takk fyrir :)

Að sjálfsögðu verður skýjahorn Olla ;)

Kv. B

Birta Líf Kristinsdóttir, 28.1.2014 kl. 23:15

7 Smámynd: Pálmi Freyr Óskarsson

Velkominn á Moggabloggið.

Pálmi Freyr Óskarsson, 30.1.2014 kl. 02:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Birta Líf Kristinsdóttir

Höfundur

Birta Líf Kristinsdóttir
Birta Líf Kristinsdóttir
Veðurfræðingur og áhugamanneskja um veður
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • vetrarorð
  • Kl. 12 þ. 8. des - SYNOP
  • Kl. 09 þ. 8. des - SYNOP
  • Kl. 06 þ. 8. des - SYNOP
  • Kl. 03 þ. 8. des - SYNOP

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband