28.2.2014 | 00:08
Veðuröfgar í heiminum í janúar 2014
Japanska veðurfræðistofnunin (Japan Meteorological Agency) tók saman helsta öfgaveðrið í heiminum í janúar 2014 og setti á skemmtilegt, gagnvirkt kort sem má nálgast hér á síðu Guardian. Þar má sjá helstu öfgarnar í hitastigi og úrkomu en ég verð að segja að ég sakna vindsins á þessu korti. Ísland er með í leiknum en á Höfn var hiti hár miðað við árstíma en ég fjallaði hér stuttlega um óvenjulega hlýtt tíðarfar á austanverðu landinu í janúar.
Á kortinu má einnig sjá hina miklu úrkomu á Bretlandi, hitabylgjuna í Ástralíu, þurrkana við vesturströnd Bandaríkjanna og kuldakastið við austurströndina þar en allt hefur þetta verið mikið til umfjöllunar í fjölmiðlum. Breska Veðurstofan gaf nýlega út skýrslu sem vildi meina að skotvindurinn ætti alla sök á þessu en ég mun jafnvel skrifa um þá skýrslu seinna. Einnig má sjá hlýindi í Alaska og Kína en minna hefur farið fyrir umfjölluninni á því.

Um bloggið
Birta Líf Kristinsdóttir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (10.3.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.