Tíðarfar í janúar 2014

Í veðurfréttum í kvöld var ég með stutt yfirlit um tíðarfarið í janúar 2014 en kortin komu ekki nógu vel út þar sem hluti textans datt út fyrir myndina. Hér eru kortin hins vegar óbrengluð.

8. Meðalhiti í janúar 20148. Úrkoma og vindur í janúar 2014

 

 

 

 

 

 

Það sem helst var óvenjulegt við veðrið í janúar var hversu hlýtt var fyrir austan ásamt mikilli úrkomu. Úrkoman var að mestu rigning en enginn dagur var alhvítur á Dalatanga og m.a.s 28 dagar alauðir þar. Á Akureyri voru hins vegar allir dagar alhvítir en einungis 2 sólskinsstundir voru skráðar þar. Fyrir norðvestan og vestan var hins vegar óvenju úrkomulítið.

Annars má lesa ítarlegri greiningu á veðrinu í janúar í þar til gerðu yfirliti Veðurstofunnar sem er birt eftir hvern mánuð og má lesa hér


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Athugasemd við annars skemmtileg kort. 12. jan. mældist mesti meðalvindhraði á Stórhöfða samkv. núgildandi mælireglu Veðurstofu Íslands 39,7 m/s og var sett á kort sem 40 m/s á korti í sjónvarpi skömmu síðar. Nú er sama orðið 39 m/s hjá þér. En samkv. þeirri mælingareglu sem var hér við líði frá 1968 til loka apríl s.l. þá var mesti 10 mín. vindhraði 12. janúar 2014 á Stórhöfða 40,817 m/s.  Með kveðju.

Óskar J. Sigurðsson (IP-tala skráð) 10.2.2014 kl. 08:29

2 Smámynd: Birta Líf Kristinsdóttir

Sæll Óskar

Ég tók þessar upplýsingar úr gagnagrunni sjálfvirkra stöðva Veðurstofunnar á sunnudaginn. Nú gæti ég hafa lesið vitlaust út úr því eða einfaldlega námundað vitlaust niður. Ég skal athuga það og leiðrétta eftir því.

Bestu kveðjur

Birta

Birta Líf Kristinsdóttir, 11.2.2014 kl. 20:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Birta Líf Kristinsdóttir

Höfundur

Birta Líf Kristinsdóttir
Birta Líf Kristinsdóttir
Veðurfræðingur og áhugamanneskja um veður
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • vetrarorð
  • Kl. 12 þ. 8. des - SYNOP
  • Kl. 09 þ. 8. des - SYNOP
  • Kl. 06 þ. 8. des - SYNOP
  • Kl. 03 þ. 8. des - SYNOP

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband